Þar sem enþá Öxará rennur
27. júlí 2012, (endurflutt 29.07.2012)
Umsjón: Margrét Sveinbjörnsdóttir.
Upptökuskýrsla
Sjötti þáttur
Þar sem ennþá Öxará rennur
Þáttaröð um mannlíf í Þingvallasveit á 20. öld : afdalasveit í alfaraleið
eftir Margréti Sveinbjörnsdóttur
Sjötti og síðasti þáttur um mannlíf í Þingvallasveit á 20. öld í umsjón Margrétar Sveinbjörnsdóttur. Lesari með umsjónarmanni var Hafþór Ragnarsson. Þáttaröðin er byggð á viðtölum við fólk á öllum aldri úr Þingvallasveit, einstaklinga sem þar búa eða hafa búið, alist upp, dvalið um lengri eða skemmri tíma - eða tengjast svæðinu með öðrum hætti.
Í þættinum voru leikin brot úr lögunum Manstu gamla daga, lag eftir Alfreð Clausen við ljóð Kristínar Engilbertsdóttur Clausen, í flutningi Alfreðs Clausen og Hljómsveitar Carls Billich, Íslenska konan, lag eftir Billy Joel, við ljóð Ómars Ragnarssonar, í flutningi Pálma Gunnarssonar, og Ég er kominn heim í heiðardalinn, lag eftir Stuart Hamblen við texta Lofts Guðmundssonar, í flutningi Hauks Morthens. Upphafs- og lokastef þáttarins er brot úr Manstu gamla daga, lagi eftir Alfreð Clausen við texta Kristínar Engilbertsdóttur Clausen, í flutningi Alfreðs Clausen og Hljómsveitar Carls Billich.
Einnig var lesið upp úr Gjörðabók Búnaðarfjelags Þingvallahrepps frá 1911.
Trending Articles
More Pages to Explore .....